Mílusteinn.is

Miðlæg lausn sem sparar bæði tíma og peninga

  • Hvað er mílusteinn.is?

    Mílusteinn.is er lausn fyrir fyrirtæki og einstaklinga sem vilja ná hámarks árangri í skipulagningu og verkefnastjórnun. Kerfið býður upp á ótal möguleika sem allir geta nýtt sér. Engin þörf er á því að kaupa rándýr forrit, því öll vinnan er á vefnum, svo að hún er aðgengileg hvar sem þú ert í heiminum. Vinalegt viðmót, sem auðvelt er að læra á tekur alltaf vel á móti þér, sama hvernig vindar blása.

  • Skrár og gögn

    Hafðu öll gögn aðgengileg starfsmönnum fyrirtækisins á einum stað.

  • Miðlæg verkefnavinna

    Halltu utan um verkefni fyrirtækisins á skilvirkan hátt svo að allir starfsmenn geta tekið þátt í þeim.

  • Dagatal

    Hafðu alla fundi og atburði miðlæga fyrir starfsmennina þína og sjáðu hvort þeir muni mæta eða ekki.

  • Flott viðmót

    Hratt og glæsilegt viðmót tekur alltaf vel á móti þér.

  • Tengiliðir

    Hafðu tengiliði fyrirtækisins, aðgengilega fyrir starfsmenn.

  • Verndun gagna

    Þar sem lausnin er miðlæg, er engin hætta á að gögn tapist þegar tölvunni er stolið eða harðidiskurinn krassar.

  • Opið allan sólar

    Nálgastu gögnin þín hvar og hvenær sem þér hentar.

  • Minni kostnaður

    Engin þörf er á því að kaupa sérstök forrit, það eina sem þú þarft að hafa er nettenging og góðan vafrara.

  • Hafðu samband

    Ef að þér vantar aðstoð, hikaðu þá ekki við að senda skilaboð á hjalp(hjá)milusteinn eða nota vefhjálpina hér fyrir neðan.

  • Prufa kerfið

    Til að prufa kerfið sem mílusteinn.is hefur upp á að bjóða skaltu fara inn á www.milusteinn.is/prufa og nota eftirfarandi upplýsingar:
    Notandanafn: prufa
    Lykilorð: prufa

  •  YFIRLIT

     Yfirlitið heldur utan um margskonar upplýsingar. Það birtir t.d. upplýsingar um: núverandi verkefni, stöðu verkefna, nýjar og breyttar skrár, síðustu skilaboð, nýjar umsagnir, ný samtöl, ólesin email og fleira.

     VINNUSVÆÐI

     Vinnusvæði bjóða upp á samhæfðar aðgerðir milli gagna og verkefna notanda vinnusvæðis Þau geta verið tengd við viðskiptafyrirtæki, verkefni, vörur, þjónustu, deildir ofl. Þú getur skilgreint stig og undirstig vinnusvæða(möppukerfi) Gerðu vinnusvæðin þín aðgreinanleg með því að breyta litum hvers og eins svæðis.

     MINNISMIÐAR

     Minnismiðar eru auðveld leið til að skrá niður upplýsingar varðandi eitthvað. Þeir geta verið notadrjúgir í sambandi við: geimslu á samtölum við þriðja aðila, gerð ýtarlegri lýsinga á ákveðnum hlut ofl. Minnismiði getur verið gerður af notanda og sendur með emaili til starfsfélaga

     E-MAIL

     Hefðbundið email sem þú getur tengt við aðganginn þinn og getur því haft emailin á vinnusvæðinu Hefðbundið sync fer fram og aðeins þarf að slá inn tengiupplýsingar einu sinni. Notendur hafa möguleika á því að deila email skilaboðum með því að tengja skilaboð við vinnusvæði. Viðhengi skilaboða eru vistuð á vinnusvæði sem skrár.

     TENGILIÐIR

     Tengiliðaeiningin heldur utan um alla tengiliði og fyrirtæki sem eru tengd fyrirtækinu þínu. Tengiliðalistinn getur verið sýjaður eftir sérstöku vinnusvæði, eftir merkimiðum eða eftir öðrum upplýsingum.

     DAGATAL

     Dagatalið getur haldið utan um fundi, atburði, mílusteina og verkefni með deadline. Dagatalið getur birt einstakan dag, viku eða mánuð allt eftir því hvað hentar best. Dagatalinu getur verið deilt með völdum aðilum.
    Þú getur séð atburði fyrir hvert vinnusvæði og hvern merkimiða.

     SKRÁR OG SKJÖL

     Mílusteinn.is leyfir þér að hlaða upp og deila skrám með öðrum starfsmönnum. Kerfið heldur utan um mismunadni skráarútgáfur, umsagnir, og stjórnar aðgangi að skránum. Með þessu er enginn vandi að auka samvinnu starfsmanna þar sem þeir þurfa ekki að senda skrárnar á milli. Word skjöl og glærusýningar geta verið búnar til á mílusteini og þeim síðan breytt þar, án þess að þurfa eitthvað auka forrit.

     VERKEFNI

     Þú getur fylgst með verkefnum, undirverkefnum og mílusteinum Kerfið veitir snögga yfirsýn yfir verkefni (verkefnum í vinnsu, verkefnum í bið, verkefnum á eftir áætlun og kláruðum verkefnum) forgang, tengda aðila og meira. Verkefni geta verið flokkuð með mílusteinum og deadline til að bæta yfirsýn yfir þau.
    Það er hægt að aðvara notanda sem er tengdur verkefni með emaili þegar breytingar hafa átt sér stað. Allar upplýsingar sem eru tengdar við verkefni eru aðgengilegar með einu klikki.
    Þú getur búið til þema út úr völdum verkefnum og undirverkefnum, til að bæta standard og rútínu verkefna

     TÍMASKÝRSLUR

     Kerfið veitir þér aðgang að tímaskýrslum sem leyfa þér að halda utan um unna tíma á hverju vinnusvæði, undirsvæði, verkefni og fyrir hvern notanda. Skýrslurnar veita þér greiðan aðgang að vinnunni þinni, upp setta í lista, eftir tímaskeiði að eigin vali.

     KRÆKJUR

     Með krækjunum geturu haldið utan um vefsíður sem tengjast vinnusvæðinu á einn eða annan hátt.

     LEIT

     Leitin er mjög sniðug að því leiti að þú týnir aldrei þeim upplýsingum sem eru orðnar gamlar. Þú getur leitað í öllum ofangreindum einingum, á hraðan og skilvirkan hátt.

     STJÓRNUN NOTENDA

     Þú getur breytt notendum, búið til nýja í gegnum notandastjórnunina. Þú getur búið til hópa fyrir notendur og breytt leyfi fyrir hvern hóp, svo að allir fái aðeins þær upplýsingar sem þeir mega fá.

     TENGDAR UPPLÝSINGAR

     Allar upplýsingar í kerfinu geta verið tengdar til að ekkert gleymist. Þegar eitthvað hefur verið búið til, t.d. skrá þá er auðvelt að tengja hana við t.d. atburð. Þannig er hægt að halda utan um allar upplýsingar á tengdan hátt með lítilli fyrirhöfn